CLARIN á Íslandi -

  • Forsíða
  • Um CLARIN-IS
  • Þátttakendur
  • Gögn
  • Þjónusta
  • Fréttir
  • Tenglar
  • English

Tenglar

 

  • META-NET
  • ELRA - European Language Resources Association
  • ELRC - European Language Resource Coordination
  • DARIAH ERIC - Digital Research Infrastructure for the Arts and Humanities
  • Máltækni fyrir íslensku 2018-2022 - Verkáætlun (mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2017)
  • Íslensk tunga á stafrænni öld / The Icelandic Language in the Digital Age (hvítbókaröð META-NET, 2012)
  • Tungutækni - skýrsla starfshóps (menntamálaráðuneytið, 1999)
  • Varðveisla menningararfleifðar á stafrænu formi (mennta- og menningarmálaráðuneytið, 2017)

CLARIN ERIC

CLARIN ERIC er rannsóknarinnviðaverkefni á vegum Evrópusambandsins – CLARIN stendur fyrir „Common Language Resources and Technology Infrastructure“ og ERIC stendur fyrir „European Research Infrastructure Consortium“. Samþykktir CLARIN ERIC hafa verið staðfestar af Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Meginmarkmið CLARIN ERIC er að öll stafræn málföng (language resources) og búnaður frá allri Evrópu (og víðar) verði aðgengileg með einni innskráningu (single sign-on) á netið, til nota í rannsóknum í hug- og félagsvísindum og innan máltækni.

CLARIN-IS

Ísland fékk aðild að CLARIN ERIC 1. febrúar 2020 en hafði verið áheyrnaraðili (observer) frá 1. nóvember 2018. Mennta- og menningarmálaráðuneytið fól Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum að vera leiðandi aðili (leading partner) í landshópi (national consortium) Íslands í verkefninu og tilnefndi Eirík Rögnvaldsson prófessor emeritus sem landsfulltrúa (national coordinator). Þann 1. október 2021 tók Starkaður Barkarson, verkefnastjóri á Árnastofnun, við stöðu landsfulltúra. Flestar stofnanir sem málið varðar taka þátt í landshópi CLARIN-IS.

Árnastofnun hefur þegar komið upp lýsigagnamiðstöð (CLARIN C-centre) sem hýsir lýsigögn íslenskra málfanga og dreifir þeim gegnum sýndarsafn málfanga (Virtual Language Observatory). Markmiðið er að koma upp tæknilegri þjónustumiðstöð (Service Providing Centre, CLARIN B-centre) þangað sem unnt verður að sækja ákveðna þjónustu og fá aðgang að gögnum og þekkingu.

CLARIN-IS, Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þingholtsstræti 29, 101 Reykjavík, netfang clarin@clarin.is, sími 525-4037
Starkaður Barkarson, landsfulltrúi – starkadur.barkarson@arnastofnun.is; Samúel Þórisson, tölvunarfræðingur – samuel.thorisson@arnastofnun.is