ISLEX framburðarskrár er safn af upptökum með öllum íslenskum uppflettiorðum (48.500) og u.þ.b. 700 orðasamböndum í ISLEX orðabókinni.
Framburður hvers uppflettiorðs í ISLEX orðabókinni er í sérstakri hljóðskrá. Þær skrár eru hátt í 49.000 og við bætast 700 skrár með orðasamböndum.
Upptökurnar voru gerðar í september 2012 í hljóðverinu Upptekið í Reykjavík. Lesari er Guðfinna Rúnarsdóttir (fædd 1963).
Þrjú snið af upptökum eru fáanleg: OGG, MP3 og WAV. Mestu hljómgæðin eru í WAV-skránum.