Íslensk nútímamálsorðabók er ný veforðabók sem samin er á Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum.
Athugið að orðabókin er enn í vinnslu og að skýringarnar við sum orðin eru ekki fullmótaðar.
Íslensk nútímamálsorðabók er nýtt verk sem eingöngu er birt á vefnum. Orðabókin er búin til hjá orðfræðisviði Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum (SÁM) í Reykjavík. Orðaforðinn er á við meðalstóra orðabók, um 50 þúsund uppflettiorð. Beygingar orðanna eru gefnar með tenglum í Beygingarlýsingu íslensks nútímamáls. Víða er að finna myndskreytingar við orðin og ennfremur eru hljóðritanir á framburði þeirra.
Verkefnið hefur verið í vinnslu frá árinu 2013. Undirstaða þess er margmála orðabókin ISLEX sem einnig er á vegum SÁM.
Íslensk nútímamálsorðabók lýsir orðaforðanum í íslensku frá því um 1950 til dagsins í dag. Einnig er hér að finna ýmis mikilvæg orð úr eldra máli svo og forníslensku sem vænta má að nemendur geti rekist á í námi sínu (t.d. bolöxi, fjörbaugsgarður, hjálmvölur og jarteikn). Af og til bætast ný orð við orðabókina og endurbætur eru stöðugt gerðar á orðskýringunum og notkunardæmunum.
Ritstjórar Íslenskrar nútímamálsorðabókar eru Halldóra Jónsdóttir og Þórdís Úlfarsdóttir. Þar sem orðabókin er að miklu leyti byggð á öðru verki, ISLEX, vísast til upplýsinga á þeim vef um aðra starfsmenn sem átt hafa hlut að máli.